top of page
Síðasta barnatönnin
Ég var 29 ára þegar hann dó. Eftir það fékk ég taugaáfall.Ekki eitthvað sem sést utan frá — heldur eitthvað sem gerist innra með manni, þar sem allt fer úr skorðum og maður stendur eftir án festu. Á sama tíma missti ég síðustu barnatönnina. Hún hafði verið pikk föst. Eins og hún ætti ekki að fara. Eins og eitthvað í mér væri enn að halda í. Mér finnst það áhugavert í dag. Að þetta hafi gerst á sama tíma. Síðasta barnatönnin. Eitthvað sem átti að fara löngu áður — en sat eftir
Guðrún Gunnarsdóttir
Apr 102 min read
Leynifélagið
Ég man ekki hvað ég var gömul — ég var frekar ung milli 11-12.ára. Við lágum á stóru steinunum þar sem við stunduðum drullumallsbakstur, eða á grasinu á litla hólnum á leikvellinum. Stelpurnar voru að horfa á norðurljósin og dáðust að ljósadýrðinni, en ekki ég. Þarna var eitthvað brotið í sálinni, þó ég vissi ekki hvað var að eða hvers vegna. Ég gat ekki horft með þeim á norðurljósin, því ég sagðist sjá ljóta hluti í þeim. Fremur barnsleg birtingarmynd af því sem var í raun a
Guðrún Gunnarsdóttir
Mar 293 min read
13.mars 2025
Frosin! Búin að sitja frosin í allan dag! Get ekki þetta ástand endalaust. Vildi að ég gæti drullast til að opna mailið og svara og fara svo í sund t.d. En neibb...er lömuð! HJÁLP! Reyni allt, eitthvað alla daga en er uppgefin á líkama og sál! Ég endurtek, HJÁLP!
Guðrún Gunnarsdóttir
Mar 251 min read
Raunveruleg vanskil
Það er eitthvað sem ég hef ekki getað gert í mörg ár. Að opna umslög. Í mörg ár safnaði ég póstinum saman. Faldi hann upp í skáp þar til magnið varð svo mikið að ég setti hann í poka. Lokaði á hann. Ég var logandi hrædd við að horfa á umslögin, innihaldið gæti verið eitthvað sem ég gæti mögulega ekki tekist á við. Mér þótti betra að fela umslögin því fyrir mér var þetta eins og að fá sprengjur inn um bréfalúguna, því innihaldið eitt og sér gæti verið “trigger” fyrir mig. Tr
Guðrún Gunnarsdóttir
Mar 2311 min read
Upphafið
Í upphafi átti þetta vekefni að verða að bók, en ég á eftitt með að beisla hugann og var orðin hrædd um að ég myndi aldrei láta verða af þessu og myndi aldrei ná að komast aftur út í lífið. Þetta er fyrsta færslan mín. Ég ætla ekki að segja þessa sögu fullkomlega — heldur eins og ég upplifði hana. Þetta er upphafið. Árið 2014 varð ég fyrir stóru áfalli sem hefur mótað allt sem ég hef gert síðan þá. Allt sem ég þekkti fyrir það var sandkassaleikur miðað við allt sem á eftir
Guðrún Gunnarsdóttir
Mar 228 min read
bottom of page