Að lifa með áfallastreitu og hugrof
Líf mitt í vanskilum
Mikilvæg ábending:
Fyrsta færslan inniheldur umfjöllun um sjálfsvíg og sjálfsvígshugsanir.
Efnið á þessari síðu er persónulegt og getur verið þungt, þar sem fjallað er opinskátt um áföll og andlega vanlíðan.
Vinsamlegast lestu með tilliti til eigin líðan.
Um mig
Ég heiti Guðrún Laufey og er fædd árið 1985 á Akranesi.
Þetta verkefni varð til á stað þar sem ég komst ekki lengra með það sem var innra með mér.
Ekki vegna þess að það vantaði orð, heldur vegna þess að orðin ein og sér dugðu ekki lengur.
Það sem ég hafði upplifað sat eftir – í líkamanum, í viðbrögðum og í því hvernig ég tengdist heiminum.
Ég byrjaði að vinna að þessu verkefni í byrjun árs 2023 eftir að hafa í nóvember árið áður reynt að taka eigið líf því ég sá ekki fram á að ná aftur tökum á eigin lífi og taldi mig vera vandamálið, að líf allra myndi verða betra ef að ég bara tæki mig út úr jöfnunni.
Þarna ákvað ég að ég yrði að fara alla leið í sjálfsvinnunni til þess að ég næði skilning á sjálfri mér og öllu því sem ég hef mætt á lífsleiðinni.
Nafnið „Líf mitt í vanskilum“ kom ekki af tilviljun.
Sama hvað hefur gengið á í mínu lífi, þá hefur eitt verið stöðugt: vanskil.
Ég eignaðist fyrstu eignina mína 17.ára gömul og þar hófst pressan, ég var orðin þræll hússins.
Ég hef ítrekað barist fyrir því að halda eigninni minni, staðið frammi fyrir nauðungarsölu og lifað með stöðugri pressu sem fylgir því að ná ekki utan um það sem þarf að sinna.
En með tímanum fór ég að sjá að þetta snerist ekki bara um fjármál.
Hugrofið hefur haft bein áhrif á getu mína til að halda utan um daglegt líf.
Ég týni tíma, missi samhengið og á erfitt með að fylgja eftir einföldum hlutum eins og reikningum, samskiptum og skipulagi.
Eftir að ég byrjaði í EMDR fór eitthvað að skýrast.
Vanskilin voru ekki bara í bankanum.
Þau voru alls staðar.
Í lífinu sjálfu.
Á meðan ég er að vinna í mér og reyna að ná utan um það sem hefur verið brotið, heldur ytri veruleikinn áfram að kalla á mig.
Kröfurnar hætta ekki.
Á meðan ég var að virkja þessa síðu, var bankað hjá mér.
Fyrir utan stóð stefnuvottur með greiðsluáskorun.
Afleiðing þess að ég hef ekki getað sinnt fjármálunum frá því fyrir jól.
Ég veit að ég þarf að grípa inn í.
Ég veit hvað þarf að gera.
En stundum sit ég föst.
Frosin.
Kvíðin.
Og dagarnir líða.
Það sem bætist við eykur þyngdina, og ég sekk dýpra á meðan ég reyni að ná jafnvægi milli þess að vinna í mínu innra og halda utan um það sem er að gerast í ytri raunveruleikanum.
Ég er ekki að skrifa þetta úr fjarlægð.
Ég er að skrifa þetta frá mínum stað, frá hugrofsheiminum.
Minni innri veröld.
Stað þar sem innri og ytri raunveruleikar mætast.
Þessi síða er hluti af því að reyna að setja orð á það sem er erfitt að útskýra – og kannski skapa rými þar sem þetta má vera til, án þess að dæma, heldur til að fræða.
Ef þú þekkir þetta á einhvern hátt, þá ertu ekki ein/n.
Þessi playlisti fylgir þessu verkefni en hann segir söguna mína, frá upphafi til dagsins í dag og mín leið til að vinna þetta verkefni sem hljóðverk á sama tíma, því oft þarf hugurinn meira en bara orð til að lýsa stöðunni.
Á þessari vegferð hef ég verið að reyna að skilja betur það sem ég upplifi, sérstaklega hugrof og áhrif áfalla á líkamann og hugann.
Í samtali við fagaðila fékk ég þessar síður sem fræðsluefni sem er talið gott og viðurkennt á þessu sviði.
Ég deili þeim hér fyrir þau sem vilja kynna sér þetta nánar.
👉 Alþjóðlegt fagfélag um áföll og hugrof
Alþjóðlegt fagfélag sem vinnur að fræðslu, rannsóknum og meðferð á áföllum og hugrofi.
Lesa meira
Fræðsluefni frá fagaðila
👉 Hvað er hugrof?
Fræðslusíða sem útskýrir hugrof og tengd viðbrögð.
Lesa meira
👉 Evrópskt fagfélag um áföll og hugrof
Evrópskt fagfélag sem vinnur að rannsóknum og þróun meðferðar við áföllum og hugrofi.
Lesa meira
Sendu mér línu ef það eru einhverjar spurningar
Upplýsingar sem sendar eru í gegnum þetta form eru einungis notaðar til að svara fyrirspurnum. Þær eru ekki vistaðar lengur en nauðsynlegt er og eru ekki afhentar þriðja aðila.
Með því að senda skilaboð samþykkir þú að við vinnum með upplýsingarnar til að svara fyrirspurninni.